16. febrúar 2009 16:37

Formannafundi ASÍ um beiðni SA um frestun á endurskoðun kjarasamninga til sumars og þar með frestun launahækkana, lauk nú á fimmta tímanum. Skoðanir voru skiptar en þó virtist góður meirihluti fundarmanna vera fylgjandi frestun vegna þeirrar hrikalegu stöðu sem er í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar. Endanleg ákvörðun í málinu er hjá samninganefnd ASÍ.
Lesa meira