Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 

Almenn slys við vinnu

Slys við vinnu sem ekki er að rekja til sakar atvinnurekanda skapa sama greiðslurétt í forföllum frá vinnu og veikindi. Að auki bætast við dagvinnulaun í allt að 3 mánuði.

• Forföll vegna almennra slysa við vinnu eru ekki reiknuð með öðrum forföllum á hverjum 12 mánuðum þegar greiðsluréttur er reiknaður. Það þýðir að þau skerða ekki réttindi launafólks vegna veikinda eða annarra almennra slysa við vinnu eða á beinni leið til eða frá vinnu.
• Hvert og eitt slys skapar að auki sjálfstæðan rétt til dagvinnulauna í 3 mánuði.
• Atvinnurekandi kostar flutning hins slasaða til heimilis eða sjúkrahúss og greiðir eðlilegan sjúkrakostnað meðan hann nýtur launa, annan en þann sem Tryggingastofnun greiðir.

Atvinnurekendum ber að kaupa atvinnuslysatryggingu fyrir starfsmenn sína samkvæmt ákvæðum kjarasamninga. Tryggingin gildir að jafnaði vegna slysa á vinnustað og á beinni leið til eða frá vinnu. Örorkubætur eru greiddar vegna varanlegrar örorku sem reiknuð er í prósentustigum. Dagpeningar eru greiddir vegna tímabundinnar örorku og dánarbætur vegna andláts launamanns.

Mikilvægt er fyrir starfsmenn að gera reka að því að fá greiddar bætur úr atvinnuslysatryggingu um leið og þeir fá vitneskju um þau atvik sem bótakrafa er reist á en samkvæmt lögum er réttur til sækja bætur úr slysatryggingu eitt ár frá vitneskju um atvikin. Í Hrd. nr. 7/2009 komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að tjónþoli gæti ekki hafa hlotið vitneskju um atvik sem leiddu af sér rétt hans til bóta fyrr en afleiðingar slyss kæmu fram. Því byrjaði frestur ekki að líða við vinnuslysið heldur þegar afleiðingar slyssins voru tjónþola kunnar.



Dagvinnulaun

eru laun sem greidd eru fyrir vinnu...