Réttur til foreldraorlofs eru 13 vikur samtals vegna hvers barns. Starfsmaður á rétt til töku foreldraorlofs eftir að hafa starfað samfellt í sex mánuði hjá sama atvinnurekanda. Réttur til töku foreldraorlofs stofnast við:• fæðingu barns,• frumættleiðingu barns yngra en átta ára,• töku barns yngra en átta ára í varanlegt fósturVið ættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur er miðað við þann tíma þegar barnið kemur inn á heimilið. Ef foreldrar þurfa að sækja barnið til annarra landa getur foreldraorlof hafist við upphaf ferðar.Hvort foreldri um sig á sjálfstæðan rétt til foreldraorlofs sem ekki er framseljanlegur.Réttur til töku foreldraorlofs fellur niður þegar barnið nær 8 ára aldri. Rétturinn getur þó framlengst til 9 ára aldurs verði ákvörðun atvinnurekanda um frestun foreldraorlofs til þess að starfsmaður nær ekki að ljúka töku foreldraorlofs áður en barnið nær átta ára aldri.
er eingreiðsla sem atvinnurekendum ber samkvæmt...