Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 

Réttur til fæðingarorlofs

Réttur til töku fæðingarorlofs stofnast við:

•  fæðingu barns,
•  frumættleiðingu barns yngra en átta ára,
•  töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur.

Réttur til fæðingarorlofs stofnast við fæðingu barns. Þó er foreldri heimilt að hefja töku fæðingarorlofs allt að einum mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag.

Réttur til  töku fæðingarorlofs fellur niður þegar barnið nær 36  mánaða aldri, samanber þó rétt til fæðingarorlofs vegna ættleiðingar og töku barns í varanlegt fóstur.

Foreldri öðlast rétt til fæðingarorlofs í allt að níu mánuði hafi hitt foreldrið andast á meðgöngu barns og barnið fæðist lifandi. Andist foreldri áður en barn nær 36 mánaða aldri færist sá réttur til fæðingarorlofs sem hinn látni hefur ekki þegar nýtt, yfir til eftirlifandi foreldris. Foreldri sem er ófært vegna sjúkdóms eða afleiðinga slyss eða afplánunar refsivistar um að annast barn sitt á fyrstu 36 mánuðunum eftir fæðingu þess er heimilt að framselja rétt sinn til fæðingarorlofs sem það hefur ekki þegar nýtt sér til hins foreldrisins að hluta eða öllu leyti. Við ættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur er miðað við 36 mánuði frá þeim tíma þegar barnið kemur inn á heimilið. Ef foreldrar þurfa að sækja barnið til annarra landa getur fæðingarorlof hafist við upphaf ferðar.

Forsjárlaust foreldri á rétt til fæðingarorlofs ef fyrir liggur samþykki þess foreldris sem fer með forsjána.
 



Gengishækkun

veldur því að erlendur gjaldeyrir verður ódýrari í íslenskum...