Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 

Aukafrídagar, aukahelgidagar

Vinnuvikan nær frá mánudegi til föstudags, að báðum dögum meðtöldum. Laugardagar og sunnudagar eru frídagar. Ákvæði um þetta er fyrst og fremst að finna í lögum um 40 stunda vinnuviku nr. 88/1971. Í 2. gr. laganna segir að unnar skuli 8 klukkustundir í dagvinnu að jafnaði á degi hverjum frá mánudegi til föstudags, nema annar vinnutími henti betur af sérstökum ástæðum og um það sé samið af aðilum. Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum tryggja það enn frekar að teknir séu frídagar. Segir þar að á hverju sjö daga tímabili skuli starfsmenn fá að minnsta kosti einn vikulegan frídag sem tengist beint samfelldum daglegum hvíldartíma. Að svo miklu leyti sem því verður við komið skal vikulegur frídagur vera sunnudagur.
Lesa meira





Vísitala neysluverðs

Mælir breytingu á verði vörukörfu með fjölmörgum...