Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 

Orlofslaun

Af hvaða grunni reiknast orlofslaun?
Samkvæmt 1. grein orlofslaganna nr. 30/1987 eiga allir þeir, sem starfa í þjónustu annarra gegn launum, hvort sem þau eru greidd í peningum eða öðrum verðmætum, rétt á orlofi og orlofslaunum. Samkvæmt 7. grein orlofslaganna reiknast orlofslaun að lágmarki 10,17% af heildarlaunum. 
 
Launahugtakið er ekki skilgreint frekar í orlofslögum en með heildarlaunum er átt við laun greidd í peningum eða öðrum verðmætum. Orlofslaun reiknast þannig af öllum launum, hvort sem um er að ræða föst laun, álög, yfirvinnu, akkorð eða aðrar óreglulegar greiðslur sem teljast til launaliða, svo fremi að ekki sé sérstaklega tekið fram í samningum að orlof sé undanþegið eða innifalið í greiðslu. Sem dæmi má nefna að í ákvæði kjarasamninga um orlofsuppbót er sérstaklega tekið fram að á orlofsuppbót greiðist ekki orlof.

Ágreiningur hefur risið um það hvort einhliða ákvarðaðar greiðslur, sem ekki er fjallað um í kjara- eða ráðningarsamning myndi stofn til útreiknings á orlofslaunum. Tekist var  á um það í HRD 401/2010. Þar var talið að einhliða ákveðinn kaupauki teldist ekki hluti þeirra „heildarlauna“ í skilningi 2.mgr. 7.gr. l. 30/1987 sem reikna bæri orlofslaun af þar sem „greiðslur þessar hafi ekki verið tengdar ráðningar- eða starfskjörum stefnanda með þeim hætti að taka beri tillit til orlofs vegna þeirra á grundvelli 2. mgr. 7. gr. orlofslaga.“

Haldi atvinnurekandi því fram að orlof hafi verið innifalið í launum starfsmanns ber hann sönnunarbyrði fyrir þeirri staðhæfingu sinni.

Útreikningur orlofslauna  
Samkvæmt 7. gr. orlofslaga reiknast orlofslaun við hverja launagreiðslu þannig að af heildarlaunum reiknast orlofslaunahlutfall viðkomandi starfsmanns að lágmarki 10,17% miðað við lágmarksorlof. Við hverja launagreiðslu skal finna út hvað starfsmaður hefur áunnið sér mikið orlof með því að umreikna það í orlofsstundir. Þetta er gert með því að reikna út orlofslaunin og deila síðan í þau með dagvinnutímakaupi. Þannig er orlofið í reynd kauptryggt, starfsmaðurinn fær orlof greitt samkvæmt þeim launum sem hann er á þegar hann fer í orlof og eru orlofsstundir fyrir tímabilið 1. maí til 30. apríl árið eftir margfaldaðar með þeim dagvinnulaunum sem þá gilda.   
 
Dæmi: Maður hafði í laun í júní 2006 kr. 150.000 vegna dagvinnu, kr. 20.000 vegna vaktaálags og kr. 20.000 vegna yfirvinnu. Samtals hafði hann í laun í júní kr. 190.000 og 10,17% af þeirri fjárhæð er orlof eða kr. 19,323. Því er breytt í orlofsstundir með því að deila í það með gildandi dagvinnutímakaupi, sem er kr. 850 (upphæðin er hér notuð sem dæmi)  Þannig eru orlofsstundir vegna júní 22.73. Yfir orlofsárið gæti þessi maður hafa áunnið sér samtals 200 orlofsstundir. Þegar hann fer í orlof sumarið 2007 hefur tímakaupið breyst og er orðið kr. 870. Orlofslaun hans verða því 870 x 200 eða kr. 170.000.

Hafa verður í huga að orlofsprósentan getur verið mismunandi eftir kjarasamningum og starfsaldri.

Útreikningur orlofslauna hjá mánaðarkaupsmönnum
Orlofslaun mánaðarkaupsfólks eru oftast reiknuð í orlofsdögum. Greiðast þá tveir dagar fyrir hvern unninn mánuð, samtals 24 dagar á ári. Meðalfjöldi virkra daga í mánuði annarra en laugardaga er 21,67 og er orlof því rúmlega mánuður, 4 vikur og 4 dagar. Við uppgjör orlofs við starfslok er nauðsynlegt að hafa þetta til hliðsjónar. Mánaðarkaupsmaður sem lætur af störfum 31. desember á inni orlof frá 1. maí, eða 16 daga sé miðað við lágmarksorlof. Dagkaupið er fundið út með því að deila 21,67 í mánaðarkaupið og það síðan margfaldað með orlofsdagafjöldanum. Þannig fæst orlofið. 
 
Þann tíma sem maður er frá vinnu vegna veikinda eða slysa fær hann greitt orlof en sé fráveran án launagreiðslna, hvort sem það er vegna veikinda, slysa, fæðingarorlofs eða sérstaks launalauss leyfis, greiðist orlof ekki.

Orlofslaun lögð inn á orlofsreikning
Þótt orlof sé reiknað af launum fólks kemur það ekki til greiðslu fyrr en í upphafi orlofstöku. Þetta eru því áunnin réttindi. Almenna reglan er sú að féð er ekki ávaxtað sérstaklega eða sérgreint í rekstri fyrirtækisins yfir orlofsárið en kemur síðan til greiðslu í upphafi orlofstöku. Í reikningsskilum fyrirtækja er áunnið orlof þó skuldfært um áramót.

Í 7. gr. orlofslaga er kveðið á um að stéttarfélögum sé heimilt að semja um þá tilhögun við einstaka launagreiðendur að orlofslaun séu jafnharðan greidd á sérstaka orlofsreikninga launþega hjá banka eða sparisjóði. Skal í slíkum samningi tryggt að sá aðili sem tekur að sér vörslu orlofslauna geri upp áunnin orlofslaun, þ.e. höfuðstól og vexti, til launþega við upphaf orlofstöku. Þessir þríhliða samningar eru víða gerðir og þykja hafa skilað góðri ávöxtun til launafólks. Stundum ná þeir til greiðslu alls orlofs launafólks en einnig geta þeir verið gerðir einungis vegna orlofs af yfirvinnu starfsmanna. Bankarnir hafa útbúið staðlað form sem yfirleitt er notað.

Skylt er að tilkynna svona þríhliða samninga og ber að senda félagsmálaráðuneytinu þegar í stað eintak og tilkynna ber einnig um slit þeirra. Þegar þríhliða bankasamningur hefur verið gerður ábyrgist bankinn greiðslu orlofs þótt vanskil verði á skilum atvinnurekanda til bankans. Við greiðslu inn á bankareikning hefur atvinnurekandi fullnægt greiðsluskyldu sinni og orlofslaunin eru úr ábyrgð hans og umsjá.

Þegar banki tekur að sér varðveislu orlofs með þessum hætti greiðir hann launamanni orlofið út í kringum 15. maí en það fer eftir ákvæðum hvers samnings fyrir sig hvort sendur er tékki til launamannsins eða honum tilkynnt um að hann eigi ákveðna innstæðu á reikningi í bankanum.

Spurning hefur vaknað um það hvort launagreiðandi megi leggja orlof á banka ef þríhliða samningur er ekki jafnhliða gerður. Það er ekkert sem beinlínis bannar launagreiðanda að leggja orlofslaun starfsfólks síns inn á banka og varðveita þau þar yfir árið. Hans skylda er einungis sú að greiða launamanni orlof í upphafi orlofstöku. Svo framarlega sem orlofslaunagreiðslan er ekki lægri en hún hefði verið með því að margfalda áunna orlofstíma með gildandi tímakaupi í upphafi orlofstöku er atvinnurekanda heimilt að hafa þennan hátt á og hann er sjálfur ábyrgur fyrir greiðslu orlofs.



Brúttólaun

Með heitinu brúttólaun er átt við heildarlaun...