Í 11. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000 er kveðið á um skyldur atvinnurekenda til að meta eða láta fara fram mat á áhættuþáttum varðandi vinnuaðstæður og skipulag vinnunnar með tilliti til öryggis og heilbrigðis þungaðrar konu, konu sem hefur nýlega alið barn eða konu sem er með barn á brjósti. Þessar skyldur og framkvæmd þeirra eru síðan útfærðar frekar í reglugerð nr. 931/2000 um ráðstafanir til þess að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum fyrir konur sem eru þungaðar, hafa nýlega alið barn eða hafa barn á brjósti.Tímabundin breyting á vinnuskilyrðum o.fl.Ef öryggi eða heilbrigði konu í þessari stöðu er talið vera í hættu samkvæmt matinu ber atvinnurekanda að gera ráðstafanir til að tryggja öryggi hennar með því að breyta tímabundið vinnuskilyrðum og/eða vinnutíma hennar. Verði því ekki við komið af tæknilegum eða öðrum ástæðum skal atvinnurekandi fela konunni önnur verkefni. Þær breytingar sem teljast nauðsynlegar á vinnuskilyrðum og/eða vinnutíma, eða breytingar á verkefnum, skulu ekki hafa áhrif á launakjör starfsmanns til lækkunar eða önnur starfstengd réttindi. Með öðrum orðum heldur starfsmaður fullum launum og starfstengdum réttindum þrátt fyrir breytingarnar. Leyfi frá störfumVerði hvorki komið við breytingum á vinnuskilyrðum eða tilflutningi í önnur verkefni skal atvinnurekandi veita konunni leyfi frá störfum í svo langan tíma sem nauðsynlegt er til að vernda öryggi hennar og heilbrigði. Þunguð kona sem veitt er leyfi frá störfum af öryggis- eða heilsufarsástæðum öðlast rétt til greiðslu fæðingarorlofs úr fæðingarorlofssjóði samkvæmt þeim reglum sem um það gilda án þess að það skerði rétt til fæðingarorlofs að öðru leyti. Mikilvægt er að hafa í huga að réttindi þungaðra kvenna samkvæmt framansögðu byggja á því að atvinnurekanda hafi sannanlega verið tilkynnt um þungunina.Réttur til mæðraskoðunar á launumÍ kjarasamningum aðildarsamtaka ASÍ eru ákvæði er mæla fyrir um rétt barnshafandi kvenna til nauðsynlegra fjarvista frá vinnu vegna mæðraskoðunar án frádráttar á föstum launum þurfi slík skoðun að fara fram í vinnutíma.
eru jafnan taldir þeir sem ekki hafa formlega ...