Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 

Breyting á ráðningarkjörum

Ráðningarsamningur gildir milli aðila samkvæmt efni sínu meðan honum er ekki sagt upp. Óski aðilar eftir að breyta efnisinnihaldi samningsins verður það ekki gert einhliða né fyrirvaralaust svo löglegt sé, og allar aðrar breytingar en þær sem leiða af breytingum á kjarasamningi kalla á nýtt samkomulag þessara aðila. Breytingar á ráðningarkjörum verða að samrýmast ákvæðum kjarasamnings þar sem hann kveður á um lágmarkskjör.

Kjarasamningi verður einungis breytt með samkomulagi þeirra sem samninginn gerðu, stéttarfélags og samtaka atvinnurekenda. Séu breytingar á ráðningarsamningi skoðaðar út frá reglum samningsréttarins þýða þær í raun að ráðningarsamningi er sagt upp, en jafnframt er gert tilboð um nýjan ráðningarsamning.

Samkvæmt samkomulagi ASÍ og VSÍ (nú SA) um skriflega ráðningasamninga frá 1996 skal staðfesta breytingar á ráðningarkjörum umfram það sem leiðir af lögum eða kjarasamningum eigi síðar en mánuði eftir að þær koma til framkvæmda.






Aðilaskipti að fyrirtækjum

eða hluta þess fela það í sér að nýr aðili...