Ef ráðningarsamningur er tímabundinn verður honum ekki slitið með uppsögn á ráðningartímanum nema sérstaklega hafi verið samið um uppsagnarheimild innan ráðningartímans. Sjá hér dóma Bæjarþings Reykjavíkur 24. október 1988 og Hrd. nr. 54/1986.Jafnvel þótt ráðningarsamningur sé til mjög langs tíma, t.d. þriggja til fimm ára, er almennt ekki talið heimilt að segja honum upp á samningstímabilinu nema sérstök atvik komi upp sem leyst geta aðila undan efndaskyldu, svo sem brostnar forsendur, fyrirtæki verður gjaldþrota eða atvik sem geta fallið undir ógildingarástæður samningalaganna, til dæmis 36. gr.
er hlutdeildarskírteini í hlutafélagi. Ávinningur hlutahafa af...