Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 

Stofnun ráðningarsambands


Þegar fólk er ráðið til vinnu er það gert með samkomulagi atvinnurekanda og launamanns. Þetta samkomulag er nefnt ráðningarsamningur. Ráðningarsamning má skilgreina sem samning þar sem annar samningsaðilinn, launamaðurinn, skuldbindur sig til að starfa hjá hinum samningsaðilanum, atvinnurekandanum, undir stjórn hans og á ábyrgð hans, gegn greiðslu í peningum eða öðrum verðmætum.

Samningar eru almennt ekki formbundnir samkvæmt íslenskum rétti. Þeir eru jafngildir hvort sem þeir eru munnlegir eða skriflegir. Þessi regla hefur almennt gilt um ráðningarsamninga.

Ráðningarsamningur getur hafa stofnast jafnvel þótt engin orðaskipti hafi átt sér stað milli aðila. Auglýst er eftir fólki til starfa og að þeir sem hug hafa á störfum mæti á tilteknum stað á tilteknum tíma. Þeir sem mæta eru síðan settir til starfa.

Þótt ráðningarsamningar séu almennt ekki skriflegir eru nokkrar tegundir þeirra formbundnar með lögum. Einnig hefur það færst í vöxt á undanförnum árum að fyrirtæki ráði allt sitt starfsfólk með skriflegum samningi. Að sjálfsögðu verða öll sönnunaratriði mun auðveldari hafi verið gerður skriflegur samningur, jafnvel þótt í honum sé aðeins vitnað í almenna kjarasamninga. Atriði eins og upphaf starfa og það hvort verið sé að semja um einhver afbrigði frá kjarasamningi getur verið nauðsynlegt að sýna fram á síðar. Þótt ráðningarsamningar séu almennt ekki formbundnir kveða kjarasamningar og lög á sviði vinnuréttar oft á um að gerðir séu skriflegir ráðningarsamningar.










Einelti

er skilgreint sem ámælisverð eða síendurtekin ótilhlýðileg...