Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 

Greiðsla launa

Skilgreining á hugtakinu laun er ekki eins í öllum tilvikum. Hugtakið er afstætt og ræðst af samhengi hverju sinni hvað fellur undir það. Laun í skilningi kjarasamninga eru endurgjald fyrir vinnu í hvaða formi sem greitt er.

Greiðsla vegna kostnaðarliða telst hins vegar ekki til launa.

Í lögum um greiðslu verkkaups nr. 28/1930 segir að verkkaup skuli greitt með gjaldgengum peningum og megi ekki greiða kaupið með skuldajöfnuði nema svo hafi áður verið sérstaklega um samið. Þótt almenna reglan sé sú að verkkaup eða laun skuli greiða með gjaldgengum peningum geta menn samið um annað form á greiðslu, svo framarlega sem ekki er verið að semja um lakari kjör en kjarasamningar kveða á um.

Laun sem menn eiga rétt á að fá greidd fyrir vinnu sína samkvæmt bindandi kjarasamningi eða ráðningarsamningi teljast eign þeirra í skilningi 72. gr. stjórnarskrárinnar.

Um eignarrétt manna til launa, sem enn hefur ekki verið unnið fyrir, var deilt í svokölluðu BHMR máli, Hrd. 1992:1962. Í dómsniðurstöðu héraðsdóms sagði að laun, sem ekki hefur verið unnið fyrir en samið um, séu kröfuréttindi, þó því skilyrði bundin að sjálfsögðu að vinna skuli koma á móti launagreiðslum. Þessi réttindi verði að telja að njóti verndar 67. gr. stjórnarskrárinnar (nú 72. gr.) eins og þau laun sem unnið hefur verið fyrir. Í þessum dómi var þó talið að löggjafanum hefði verið heimilt með lagasetningu að skerða samningsbundin laun án þess að bætur kæmu fyrir. Þau skilyrði sem þyrftu að vera til staðar væru þau að skerðingin væri almenn, ekki úr hófi, ekki væri um beina tilfærslu verðmæta frá einum aðila til annars að ræða, gild rök væru færð fram fyrir nauðsyn skerðingarinnar og að þeir hagsmunir sem ætlunin væri að vernda hefðu mun meira vægi en hagsmunir þeirra sem löggjöfin beindist að.

Í kjarasamningum er kveðið á um hvaða lágmarkskaup skuli greitt fyrir tiltekin störf. Það eru þau atriði sem flestir kjarasamningar byrja á að fjalla um, og þau atriði sem flestar kjaradeilur ganga út á. Í kjarasamningum er samið um tímakaup eða mánaðarkaup, um launauppbætur, orlofsuppbætur og desemberuppbætur, um námskeiðsálög, yfirvinnu og fleira. Ráðningarsamningar hafa oft að geyma ákvæði um yfirborganir, annað hvort að samið sé um ákveðna krónutölu eða yfirborgunarhlutfall á tiltekinn launaflokk, samið um fasta yfirvinnugreiðslu eða að kaupákvörðunin sé ekki í neinum tengslum við ákvæði kjarasamnings.

Á
kvæði í kjarasamningum eru lágmarkskjör. Ákvæði í ráðningarsamningum um lakari kjör en kjarasamningar kveða á um eru ógild á grundvelli 1. gr. l. 55/1980 um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda.

Sjá hér til dæmis Hrd. frá 15. febrúar 1996. Ennfremur dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá 31. janúar 1997 í svokölluðu Sleipnismáli, þar sem ekki var fallist á að unnt væri með heildarkjarasamningi að ógilda samninga sem byggja á sérstökum ráðningarkjörum, en falla ekki undir ákvæði heildarkjarasamnings. Þeim dómi var áfrýjað til Hæstaréttar.

Fastakaup, tímakaup, vikukaup eða mánaðarkaup
Víða á vinnumarkaði er samið um ákveðið fastakaup, tímakaup, vikukaup eða mánaðarkaup, og síðan er samið um viðbótargreiðslur sem tengdar eru afköstum eða árangri. Þessar viðbótargreiðslur eru ýmist tengdar afköstum hópsins í heild eða einstaklingsins. Sérstakir kaupauka- og bónussamningar hafa verið gerðir hjá tilteknum starfshópum, svo sem í fiskvinnslu.

Þar er fjallað um afkastahvetjandi launakerfi, ýmis framkvæmdaatriði við kerfið, vinnutíma, til hverra bónusinn taki, um rétt til kaupauka í veikindum, um það hvernig taka beri á vandamálum sem upp kunna að koma, um gildistíma og greiðslur. Í bónussamningum í fiski er ekki aðeins greitt fyrir afköst heldur líka fyrir nýtingu og meðferð á hráefni. Þar er einnig samið um ákveðna reiknitölu sem kaupaukinn tekur mið af. Sú reiknitala miðast ekki endilega við ákveðinn launataxta þótt hún hafi upphaflega gert það. Bónus er síðan ákveðið hlutfall af reiknitölu.
Akkorðssamningar eru þannig að eingöngu er greitt fyrir afköst. Þeir hafa aðallega viðgengist í síldarsöltun. 

Í vissum iðngreinum miðast laun við ákveðin uppmælingarkerfi, svo sem hjá trésmiðum, rafvirkjum, málurum, múrurum og pípulagningamönnum. Sjá nánar www.samidn.is og www.rafis.is

Starfstengd hlunnindi
Gera verður greinarmun á launum og ýmiss konar hlunnindum eða fríðindum svo og greiðslum vegna útlagðs kostnaðar, svo sem greiðslu á ferðareikningum starfsmanna sem ferðast á vegum atvinnurekanda og greiðslum vegna notkunar eigin bifreiðar í þágu atvinnurekstrar. Samkvæmt skattalögum á að greiða skatta af öllum hlunnindum. Hafi starfsfólk frítt fæði ber því samt sem áður að greiða skatta af fæðinu. Ríkisskattstjóri semur og gefur út sérstakt hlunnindamat einu sinni á ári og ber fólki að greiða skatta af hlunnindum á grundvelli þess mats.

Ekki er þó skylt að greiða staðgreiðslu af öllum launum og hlunnindum. Í reglugerð nr. 591/1987 um laun, greiðslur og hlunnindi utan staðgreiðslu eru listaðar þær greiðslur sem ekki eru staðgreiðsluskyldar. Þessar greiðslur eru helstar ökutækjastyrkir, sem greiddir eru samkvæmt sundurliðuðum gögnum, dagpeningar, ferðapeningar og hliðstæður ferða- og dvalarkostnaður, svo og einkennisfatnaður sem launagreiðandi lætur launamanni í té.


Félagsaðild

Á vinnumarkaði er með orðinu félagsaðild vísað...