Gylfi Arnbjörnsson var kjörinn forseti ASÍ á 8. ársfundi Alþýðusambandsins 24. október 2008 og endurkjörinn til tveggja ára á ársfundi 22. október 2010. Hann hafði frá árinu 2001 verið framkvæmdastjóri ASÍ en Gylfi kom fyrst til starfa hjá verkalýðshreyfingunni árið 1989, þá sem hagfræðingur Kjararannsóknarnefndar. Hann var hagfræðingur ASÍ frá 1992-1997 og framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn hf frá 1997-2001.
Gylfi Arnbjörnsson er fæddur í Keflavík 12. maí 1958. Foreldrar hans eru Jóna Sólbjört Ólafsdóttir verslunarmaður og Arnbjörn Hans Ólafsson sjómaður. Þau eignuðust sjö börn.
Eiginkona Gylfa er Arnþrúður Ösp Karlsdóttir verkefnisstjóri hjá Listaháskóla Íslands og eiga þau fjögur börn. Gylfi lauk verslunarprófi frá Samvinnuskólanum á Bifröst 1978 og meistargráðu í Hagfræði frá Verslunarháskólanum í Kaupmannahöfn 1986.
Varaforseti ASÍ er Signý Jóhannesdóttir. Hún var kjörin til tveggja ára á ársfundi 22. október 2010.
veldur því að erlendur gjaldeyrir verður ódýrari í íslenskum...