Stéttarfélög eru félög sérstaks eðlis og njóta verndar í stjórnarskrá, lögum og alþjóðasamþykktum sem Ísland á aðild að. Þau hafa að lögum mikilvægi hlutverki að gegna á vinnumarkaði, í afkomu launafólks og í efnahagslífi hverrar þjóðar. Gagnvart atvinnurekendum og samtökum þeirra hafa þau heimild en jafnframt skyldu til sameiginlegrar samningsgerðar (kjarasamningsgerðar ) um starfskjör launafólks og jafnframt heimild til þess að beita valdi (verkföllum) til þess að þvinga fram lögmætar kjarakröfur. Hefðbundin starfsemi stéttarfélaga miðar að því að treysta afkomu og öryggi launafólks og skiptir um leið efnahag fyrirtækja og þjóðarbús miklu. Á þessum hluta Vinnuréttarvefs ASÍ er fjallað um stéttarfélögin sjálf, aðild að þeim og önnur tengd efni en síðan er fjallað um kjarastarfsemi þeirra sem felst í gerð kjarasamninga, kjaradeilur og verkföll. Hugtökin verkalýðsfélög og stéttarfélög eru notuð jöfnum höndum án þess að í því felist neinn efnislegur munur.
eru laun sem greidd eru fyrir vinnu...