Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 

Vinnuréttur

Velkomin á vinnuréttarvef ASÍ sem er ómissandi upplýsingavefur fyrir launafólk, atvinnurekendur og allan almenning og getur auk þess verið verkfæri í höndum þeirra sem þurfa starfs síns vegna upplýsingar um þær reglur sem gilda á íslenskum vinnumarkaði. Kappkostað er við að uppfæra vefinn reglulega og m.a. sagt frá áhugaverðum dómum á sviði vinnuréttar og fluttar fréttir af framkvæmd á einstökum sviðum.

Að stofni til er byggt á bókum Láru V. Júlíusdóttur hrl. “Réttindi og skyldur á vinnumarkaði” sem kom út haustið 1997 og "Stéttarfélög og vinnudeilur" sem kom út 1994. Margvíslegar breytingar hafa orðið á íslenskum vinnurétti frá þeim tíma, s.s. vegna breytinga á kjarasamningum, tilkomu nýrra laga á vinnumarkaði, nýrra EES-tilskipana á sviði vinnuréttar sem hér hafa verið innleiddar á grundvelli EES-samningsins. Sá stofn sem lagt er upp með hefur því tekið nokkrum breytingum auk þess sem verulega hefur verið við hann bætt og stöðugt unnið að leiðréttingum og uppfærslum. Athugasemdum um efni og efnistök má beina til starfsmanna lögfræðideildar ASÍ.

Magnús M. Norðdahl hrl. deildarstjóri.

Icelandic Labour Law in English 



Fyrirtækjasamningur

er kjarasamningur sem gerður er á milli tiltekins fyrirtækis...