ASÍ er samband landssambanda og landsfélaga með beina aðild. Æðsta vald í málefnum ASÍ er í höndum ársfunda sambandsins. Árlega koma saman 290 kjörnir fulltrúar launafólks af öllu landinu, en hvert aðildarfélag á rétt á að senda a.m.k. einn fulltrúa óháð stærð. Á fundinum er stefna heildarsamtakanna mótuð og þeim valin forysta. Ársfundirnir voru teknir upp árið 2001 og komu í stað þinga ASÍ sem áður voru haldin á fjögurra ára fresti.Miðstjórn ASÍ er 15 manna og sér um daglega stjórn sambandsins milli ársfund og kemur saman tvisvar í mánuði, gjarnan 1. og 3. miðvikudag í mánuði. Forsetafundir eru haldnir alla mánudagsmorgna, þar sem forseti, varaforseti, framkvæmdastjóri og aðstoðarframkvæmdastjóri fara yfir helstu málefni sambandsins fyrir komandi viku. Á forsetafundum er dagskrá næsta miðstjórnarfundar skipulögð.Til að fylgja stefnumótun ársfunda eftir hefur miðstjórn ASÍ sett á laggirnar 9 málefnanefndir. Þær hafa frumkvæði að stefnumótun ASÍ hver á sínu sviði og fylgja eftir samþykktum miðstjórnar. Í þessum nefndum ASÍ starfa, auk fulltrúa miðstjórnar, fulltrúar frá landssamböndum innan ASÍ og landsfélaga með beina aðild auk sérfræðings frá skrifstofu ASÍ – alls 8 fulltrúar. Fastanefndir ASÍ gefa góða mynda af því viðamikla starfi sem sambandið hefur með höndum og samráði aðildarsamtakanna. Fastanefndir ASÍ eru: Alþjóðanefnd, atvinnumálanefnd, jafnréttis- og fjölskyldunefnd, menntanefnd, kjara- og skattanefnd, skipulags- og starfsháttanefnd, velferðarnefnd, vinnuréttar- og vinnumálanefnd, og lífeyris- og trygginganefnd.Auk þessa innra starfs á ASÍ viðamikið samstarf og samráð við bæði ríki og sveitarfélög um ýmis mál. Því skipar miðstjórn ASÍ fulltrúar ASÍ í ýmsum nefndum og ráðum.Forseti ASÍ er Gylfi ArnbjörnssonVaraforseti ASÍ er Ingibjörg R. GuðmundsdóttirFramkvæmdastjóri ASÍ er Gylfi Arnbjörnsson
Hugtakið gengur í meginatriðum út á að tryggja...