Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða



 
02. febrúar 2012 09:50

Bunki af ályktunum sendur þingmönnum

Í aðdraganda endurskoðunar kjarasamninga sem fram fór þann 20. janúar sendi fjöldi sambanda og félaga innan ASÍ frá sér ályktanir þar sem vanefndir ríkisstjórnarinnar voru harðlega gagnrýndar. Á formannafundi 19. janúar kom fram sá vilji fundarmanna að öllum alþingismönnum þjóðarinnar yrðu sendar þessar ályktanir. Það hefur nú verið gert og bárust þær þingmönnum í gær undir yfirskriftinni Pacta Sunt Servanda (Samningar skulu standa).
Lesa meira
31. janúar 2012 16:52

Nýtt fréttabréf ASÍ komið út

Í fréttabréfi janúarmánaðar er fjallað um endurskoðun kjarasamninga og tilraunaverkefni sem verður hleypt af stokkunum í vor um þjónustu stéttarfélaga við atvinnuleitendur. Einnig er grein um vaxtamál í framhaldi af fundarröð sem ASÍ stóð fyrir í desember og janúar auk þess sem fjallað er um það öfluga fræðslustarf sem unnið er innan verkalýðshreyfingarinnar.
Lesa meira
30. janúar 2012 14:19

Gildi starfsmenntunar í íslensku samfélagi - ráðstefna

Ráðstefna Iðnmenntar 2012 á Grand Hótel Reykjavík 3. feb. kl. 13:00. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Starfsmenntun, skóli, atvinnulíf. Menntamálaráðherra og forseta ASÍ meðal ræðumanna.
Lesa meira
Á líðandi stundu
Horfur í efnahagsmálum 2011-2014 er ný Hagspá hagdeildar ASÍ sem kynnt var 25. október 2011.
Kynjabókhald 2011 inniheldur upplýsingar úr skýrslum aðildarfélaga þar sem fram kemur fjöldi félagsmanna og hlutfall kvenna og karla í stjórnum og ráðum.
Samantekt um atvinnuleysi og fjárfestingar var lögð fram á formannafundi ASÍ í október 2011.
Árið í hnotskurn 2011 tæpir á helstu viðfangsefnum ASÍ á árinu.
Kjarasamningar aðildarsamtaka ASÍ og SA voru undirritaðir 5. maí 2011.

Aðildarviðræður við ESB


Lykiltölur

Hlutabréf

er hlutdeildarskírteini í hlutafélagi. Ávinningur hlutahafa af...