Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
02. september 2010 16:05

Vörukarfan ódýrust í Bónus

2.678 kr. eða 20% verðmunur reyndist vera á matarkörfunni í lágvöruverslunum þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á höfðuborgarsvæðinu gær, miðvikudaginn 1. september.

Vörukarfan var ódýrust í Bónus þar sem að hún kostaði 13.547 kr og dýrust í Kosti 16.225 kr.

Karfan var 745 kr. dýrari í Krónunni en í Bónus eða 5% og 1.208 kr. munur var á körfunni á milli Nettó og Bónus eða 9%.

Minnstur verðmunur í könnunni var á mjólkurvörum og ostum en munurinn er yfirleitt á bilinu 2%-8%. Mestur verðmunur í könnunni var á rauðum chilli 162% og íslenskum gulrótum 158% en verðmunur á grænmeti og ávöxtum var almennt mikill. Sem dæmi má nefna að ódýrustu jónagold eplin kostuðu 111 kg/kg í Bónus en þau voru dýrust 219 kr/kg í Kosti, verðmunurinn er 97%. Ódýrasta spínatið kostaði 1.550 kr/kg í Nettó og Kosti en það dýrasta 2.295 kr/kg í Bónus, verðmunurinn er 48%.

Verðmunur á dósamat og þurrvöru var einnig mikill. Ódýrasta jarðaberjasultan kostaði 544 kr/kg í Bónus en 1.238 kr/kg í Krónunni sem er 128% verðmunur. Ódýrustu Basmati grjónin fengust í Kosti á 411 kr/kg en þau voru dýrust í Nettó á 749 kr/kg, munurinn er 82%.

Sjá nánar í töflu.

Vörukarfan samanstendur af 43 almennum neysluvörum til heimilisins ss. mjólkurvörum, osti, brauðmeti, morgunkorni ávöxtum, grænmeti, áleggi, kjöti, drykkjarvörum, ásamt ýmsum pakkavörum, dósamat ofl. Vörurnar í körfunni eru flestar frá þekktum vörumerkjum sem þó geta verið seldar í mismunandi pakkastærðum eftir verslunum. Er þá tekið mið af lægsta mælieiningaverði (kíló/lítra/stykkjaverð) vörunnar í hverri verslun. Í þeim tilvikum þar sem vörumerki eru mismunandi eftir verslunum er tekið verð á ódýrustu fáanlegu vöru sem uppfyllir sett skilyrði í viðkomandi verslun.

Könnunin var gerð í eftirtöldum verslunum; Bónus Garðabæ, Krónunni Granda, Nettó Breiðholti og Kosti Dalvegi.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.



Til baka


Fréttalisti


Foreldraorlof

er samkvæmt lögum 13 vikna frí sem foreldrar...