27. ágúst 2010 11:01
Jón Bjarnason landbúnaðarráðherra tók nýlega einhliða ákvörðun um að hækka gríðarlega tolla á innfluttum landbúnaðarafurðum. Miðstjórn ASÍ ræddi þetta mál á fundi sínum í gær og þar kom fram hörð gagnrýni á ákvörðun ráðherrans þar sem hún gangi beint gegn hagsmunum neytenda. Breytingin dregur úr samkeppni og stuðlar að enn frekari hækkun á landbúnaðarvörum.
Þá komu upp efasemdir um að ákvörðun Jóns Bjarnasonar standist alþjóðlegar skuldbindingar Íslands eins og t.d. GATT samkomulagsins. Ákveðið var að beina því til utanríkisráðuneytisins að það kanni lögmæti þessa gjörnings ráðherra.
Svokallað mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra kom einnig til umfjöllunar miðstjórnar ASÍ í gær. ASÍ leggur til að frumvarpið verði fellt eins og sjá má í eftirfarandi
umsögn.
Til baka