Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
24. ágúst 2010 14:38

Umtalsverðar verðhækkanir á skólabókum seinustu 3 árin

Verð á nýjum skólabókum sem verðlagseftirlit ASÍ kannaði miðvikudaginn 18. ágúst 2010 hefur hækkað um allt að 125% frá sambærilegri könnun í ágúst 2007. Verð skólabókanna hækkaði í flestum tilvikum yfir 25%, en mörg dæmi eru um hækkanir um og yfir 50%. Mest hækkuðu bækurnar í Griffli og Office 1 á milli kannanna.

Sem dæmi um miklar verðbreytingar má nefna þýsku kennslubókina „Þýska fyrir þig, málfræðibók“ sem hækkaði um 56% hjá Griffli, 50% hjá Office 1, 18% í Mál og menningu og IÐNÚ en lækkaði um 10% hjá Bóksölu stúdenta. Þá lækkaði íslenskubókin „Þyrnar og rósir“ um 1% hjá Pennanum-Eymundsson en hækkaði á sama tíma um 62% hjá Griffli.

„Danskur málfræðilykill“ hækkaði mest frá könnun verðlagseftirlitsins 2007 en hækkunin var 125% hjá Office 1, 88% hjá Griffli, 55% hjá Pennanum-Eymundsson og u.þ.b. 40% í IÐNÚ, Mál og menningu og Bóksölu stúdenta.

Minni verðmunur nú

Dregið hefur verulega úr verðmun á milli söluaðila frá könnun verðlagseftirlitsins í ágúst 2007. Þá var verðmunur á þeim námsbókum sem skoðaðar voru á bilinu 25-88%, en oftast u.þ.b. 50%. Núna í ágúst 2010 er munurinn á milli hæsta og lægsta verðs á bilinu 10-69% og oftast er hann 10-15%.

Kannað var verð í eftirtöldum verslunum: Máli og menningu Laugavegi, Bóksölu stúdenta Hringbraut, Pennanum-Eymundsson Hallarmúla, Office 1 Skeifunni, Griffli Skeifunni og Bókabúðinni Iðnú Brautarholti.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Nánari samanburð má sjá hér.

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.



Til baka


Fréttalisti


Brúttólaun

Með heitinu brúttólaun er átt við heildarlaun...