20. ágúst 2010 14:53
Mismunur á innkaups- og útsöluverði skólabóka á skiptibókamörkuðum er allt að 77% samkvæmt verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í fjórum bókabúðum á höfðaborgarsvæðinu miðvikudaginn 18. ágúst. Skoðaðir voru 9 algengir titlar af kennslubókum fyrir framhaldsskóla.
Allt að þriðjungs munur er á innkaupsverði einstakra bóka á milli verslana. Mesti munurinná útsöluverði verslana var hinsvegar 53,3%.
Hæsta álagningin í könnunni var hjá Mál og Menningu, 67%. Penninn-Eymundsson lagði minnst á skiptibækurnar u.þ.b þriðjung. Office 1 var með 50% álagningu og Griffill var með álagningu á bilinu 13% til 77%.
Þetta þýðir sem dæmi að námsmaður sem kemur með eintak af félagsfræðibókinni „Einstaklingurinn og umhverfið“ fær kr. 1.480 kr. fyrir bókina hjá Griffli. Námsmaðurinn sem kemur í verslunina og kaupir notaða eintakið greiðir hins vegar 2.145 kr. fyrir þessa sömu bók, mismunurinn er kr. 665 kr. eða 45%.
Nemendur geta sparað sér miklar upphæðir.
Office 1 er með hæsta innkaupsverðið sem og hæsta útsöluverðið í könnuninni, í báðum tilvikum á 7 af 9 titlum.
Lægsta innkaupsverðið var hjá Máli og menningu á Laugarvegi í 8 tilfellum af 9. Lægsta útsöluverðið er aftur á móti hjá Pennanum-Eymundsson í 8 tilfellum af 9, en taka skal fram að þegar könnunin var gerð voru þeir með 20% afslátt á kassa af skiptibókum sem er reiknað inn í verðið.
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði, úrval eða þjónustu söluaðila.
Sjá nánar niðurstöður í töfluformi
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum eða við sölu nema með heimild ASÍ.
Til baka