Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
19. ágúst 2010 16:02

Mikill verðmunur á skólabókum

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á nýjum og notuðum skólabókum fyrir framhaldsskóla í verslunum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Farið var í 6 verslanir og skoðað verð á 27 algengum nýjum bókum. Einnig voru skoðaðir 10 titlar á 4 skiptibókamörkuðum.

Mál og menning við Laugveg var oftast með hæsta verðið á nýjum bókum eða á 17 titlum af 27 og Penninn–Eymundsson var með hæsta verðið á 14 titlum af 27.

Griffill var oftast með lægsta verðið á nýjum bókum í þessari könnun en 15 titlar af 27 voru á besta verðinu hjá þeim. Á eftir þeim kemur Bóksala stúdenta þar sem 9 titlar af 27 voru ódýrastir, en þar er veittur 10% fastur afsláttur af íslenskum bókum sem reiknaður var inn í verðið.

Mesti verðmunurinn á nýrri bók var 103,4% á enskubókinni„The Lord of the flies“, en bókin kostar 981 kr. í Bóksölu stúdenta en 1.995 kr. í Pennanum-Eymundsson og Griffli.

Minnstur verðmunur á nýrri bók var 9,6% á félagsfræðibókinni“ Hvernig veit ég að ég veit?“, en bókin kostar 3.610 kr. í Pennanum-Eymundsson og 3.295 kr. í Griffli.

Sjá nánari niðurstöðu um nýjar bækur.

Verðmunur á skiptibókamörkuðum.

Á skiptibókamörkuðunum leit þetta öðruvísi út. Penninn–Eymundsson var oftast með lægsta útsöluverðið, eða á 8 titlum af 10, en taka skal fram að þegar könnunin var gerð voru þeir með 20% afslátt á kassa af skiptibókum sem er reiknað inn í verðið.

Office 1 var oftast með hæsta útsöluverðið á notuðum skólabókum eða á 8 titlum af 10.

Verðmunur á milli skiptibókamarkaðanna var í flestum tilvikum um eða yfir 30%. Mesti verðmunurinn var þó 76,3% á íslenskubókinni „Íslensk málsaga“ en bókin kostaði 2.094 kr. í Office 1 og 1.188 kr. í Griffli.

Mikill munur á útsöluverði nýrra og notaðra kennslubóka.

Mikill munur reyndist á verði nýrra og notaðra námsbóka og var munurinn oftast um eða yfir 100% þó rétt sé að taka fram að ástand notaðra bóka geti verið misjafnt.

Sjá nánari niðurstöður um notaðar bækur.

Námsmenn ættu einnig að hafa hugfast að verð á algengum bókatitlum breytast oft ört hjá verslunum við upphaf skólaárs. Úrval notaðar bóka á skiptibókamörkuðum var mjög misjafnt eftir verslunum þegar könnunin var gerð en getur breyst með skömmum fyrirvara.

Kannað var verð í eftirtöldum verslunum: Máli og menningu Laugavegi, Bóksölu stúdenta Hringbraut, Pennanum-Eymundsson Hallarmúla, Office 1 Skeifunni, Griffli Skeifunni og Bókabúðinni Iðnú Brautarholti. Í öllum verslunum voru seldar nýjar bækur en notaðar bækur voru ekki seldar í Bóksölu stúdenta og Iðnú.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum eða við sölu nema með heimild ASÍ.

Til baka


Fréttalisti


Félagsleg undirboð

Félagsleg undirboð háttsemi erlendra fyrirtækja sem lýsir sér einkum í því að starfsmönnum þeirra eru ekki greidd laun í samræmi við lög og kjarasamninga í gistiríki, þeim er ekki tryggður sá aðbúnaður og öryggi á vinnustað sem lög gera kröfu um og svikist er um að greiða lög- og samningsbundin gjöld af þeim til stofnana samfélagsins, þ.m.t. stéttarfélaga. Með þessu er brotið bæði á hagsmunum viðkomanda starfsmanna og grafið undan stofnunum samfélagsins, tiltrú almennings á þeim og vilja þeirra til að fjármagna þær með sköttum og öðrum gjöldum.