18. ágúst 2010 10:13
„Þetta er með stærri skrefum sem Seðlabankinn hefur stigið í vaxtalækkunum og því ber að fagna“, segir Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ aðspurður um stýrivaxtalækkun Seðlabankans úr 8% í 7%.„ASÍ hefur lengi talað fyrir vaxtalækkun og við viljum sjá bankann ganga enn lengra. Verðbólgan hefur farið hratt niður og allar líkur á að hún lækki enn frekar á næstu mánuðum. Við viljum að fjármagnið sem er í umferð leiti í ríkara mæli út í atvinnulífið í stað þess að liggja á háum vöxtum í Seðlabanka á kostnað ríkissjóðs.Það var jákvætt skref stigið í dag en betur má ef duga skal“, segir Gylfi Arnbjörnsson.
Til baka