Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
16. ágúst 2010 14:26

Forseti ASÍ á fundarferð um landið

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ mun næsta mánuðinn gera víðreist um landið og hitta að máli stjórnir allra 53 aðildarfélaga Alþýðusambandsins. Ferðin hefst með fundi í Stykkishólmi í dag og lýkur í Reykjavík þann 15. september.

Umræðuefni fundanna verður annars vegar afmarkaðar tillögur að breytingum á skipulagi ASÍ og hins vegar mun forsetinn gera grein fyrir samskiptum Alþýðusambandsins við ríkisstjórn og SA á samningstímanum sem nú er að líða.Einnig má búast við að kröfugerð vegna komandi kjarasamninga komi til tals auk Evrópumála.

Hér má líta fundarplan forseta Alþýðusambandsins (með fyrirvara um breytingar).

 

 



Til baka


Fréttalisti


Brúttólaun

Með heitinu brúttólaun er átt við heildarlaun...