Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
08. júlí 2010 14:15

Vörukarfan hefu lækkað lítillega í verði frá því í febrúar

Vörukarfa ASÍ hefur á hækkað um 2-7% í helstu verslunarkeðjum frá því í maí í fyrra. Verð körfunnar hefur þó lækkað nokkuð í flestum verslunarkeðjum frá því hún náði toppi sínum í febrúar síðastliðnum eftir nær samfeldar verðhækkanir síðan um mitt ár 2008. Undanfarið ár hefur verð vörukörfunnar hækkað mest í klukkubúðunum Ellefu-ellefu um 13% og Samkaupum-Strax um 7%. Í lágvöruverðsverslunum hefur verð körfunnar hækkað mest í Bónus um 6,4% frá því í maí í fyrra.

Séu skoðaðar tvær síðustu mælingar verðlagseftirlitsins á vörukörfunni í ferbúar sl. og nú í júní má sjá nokkra lækkun í flestum verslunarkeðjum á tímabilinu að Nettó, Kosti og Ellefu-ellfu undanskildum. Gera má ráð fyrir að áhrifa af sterkara gengi krónunnar sé farið að gæta í vöruverði en í ljósi þeirrar styrkingar sem orðið hefur á genginu undanfarna mánuði er tilefni til áframhaldandi lækkunar á matvöruverði.

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar mat- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðalheimilis. Verðbreytingar eru skoðaðar í eftirfarandi verslanakeðjum: Í lágvöruverðsverslunum Bónus, Krónunni, Nettó og Kosti og í almennu matvöruverslununum Hagkaupum, Nóatúni og Samkaupum-Úrval og klukkubúðunum, 10-11, 11-11 og Samkaupum-Strax.

Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar í verslanakeðjunum á milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræðaþ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.

Óheimilt er að vitna í niðurstöðurnar í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.



Til baka


Fréttalisti


Félagsaðild

Á vinnumarkaði er með orðinu félagsaðild vísað...