30. júní 2010 14:06
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir ákvörðun Seðlabanka og FME varðandi vexti á ólöglegu gengistryggðu lánin stangast á við mat lögfræðinga ASÍ. Þeir telja að skuldara beri aðeins að greiða samningsvexti. "Ákvörðun Seðlabankans hefur engin formleg áhrif þar sem þetta mál verður leitt til lykta fyrir dómstólum. Að ætla verja fjármálastöðugleika í landinu með óskhyggju er afar sérkennilegt," segir forseti ASÍ.
Gylfi bætti við að það væri mikilvægt að ríkisstjórnin beiti sér fyrir flýtimeðferð á þessu máli fyrir dómstólum. Það verði að leiða til lykta sem allra fyrst.
Til baka