28. júní 2010 14:17
Sharan Burrow nýkjörin framkvæmdastjóri Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC) lýsti miklum vonbrigðum með niðurstöðu fundar helstu efnahagsríkja heims sem lauk í Toronto í gær. Meira aðhald í ríkisrekstri var ein meginniðurstaða fundarins og er stefnt að því minnka fjárlagahalla í þessum stóru hagkerfum um helming á næstu þremur áru.
Burrow segir að með þessari ákvörðun séu leiðtogarnir að taka mikla áhættu á að annað alvarlegt samdráttarskeið ríði yfir heimsbyggðina. „Atvinnusköpun og hærri laun er það sem ætti að drífa endurreisnina áfram og á síðasta ári virtist sem leiðtogarnir áttuðu sig á því. Nú senda þeir hins vegar frá sér misvísandi skilaboð. Afleiðingin verður óhjákvæmilega meira atvinnuleysi, minni umsvif og það er ekki leiðin út úr kreppunni,“ segir Sharan Burrow í fréttatilkynningu.
Sharan Burrow tekur við framkvæmdastjóraembættinu í ITUC af Guy Ryder sem hefur gegnt því undanfarin 4 ár. Hún er fyrsta konan sem gegnir þessu embætti en hún var áður forseti Alþýðusambands Ástralíu.
Til baka