Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
25. júní 2010 11:09

Forseti ASÍ ávarpar heimsþing ITUC

Annað heimsþing ITUC (alþjóðasamband verkalýsðfélaga) fer nú fram í Vancouver í Kanada.  Áherslan á fundinum er á hnattrænt réttlæti í kjölfar fjármálakreppunnar.  „Nú er komið að fólkinu“, eins og Guy Ryder framkvæmdastjóri ITUC sagði í skýrslu sinni til þingsins.  Hann sagði alla fundarmenn, hvaðan sem þeir kæmu, væru núna að upplifa afleiðingar fyrstu heimskreppunnar eftir hnattvæðingu.  Eftir hrunið árið 2008 hafa 34 milljónir manna misst vinnuna og öðrum 64 milljónum þröngvað til fátæktar. Í ræðu sinni lagði Ryder áherslu á að félagslegt réttlæti og traust væru nauðsynlegir þættir til að ná fram sátt og bata.  Fjöldinn liði nú fyrir aðgerðir fárra í aðdraganda kreppunnar og slíkt mætti ekki gerast aftur.

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ situr þingið fyrir hönd íslensku verkalýðshreyfingarinnar og ávarpaði hann það á miðvikudaginn.  Í ræðu sinni lýsti Gylfi afleiðingum hrunsins á Íslandi, m.a. hvers vegna lífeyrissjóðirnir á Íslandi hefðu sloppið betur undan hruninu en flestir aðrir fjárfestar.  Hann benti jafnframt á nauðsyn þess að unnið verði gegn því á öllum vígstöðvum að hagkerfi nýfrjálshyggjunar, sem leiddi heiminn í kreppu, verði endurræst þannig að allt fari aftur í sama farið.  Ræðu Gylfa má lesa hér.

Í gær var samþykkt söguleg ályktun um loftslagsmál á þingi ITUC. Stefna ASÍ um að gera Ísland að fyrsta raunverulega græna hagkerfinu með áherslu á endurnýjanlegar orkulindir, hrein matvæli og nátturuvæna ferðamennsku rímar vel við þá ályktun.  Hún miðar að því að skapa fleiri græn störf og draga eins og mögulegt er úr losun gróðurhúsalofttegunda.  Einnig felur hún í sér áskorun til þjóða heims um að koma sér saman um metnaðarfullt og bindandi samkomulag í loftslagsmálum undir forystu Sameinuðu þjóðanna.

Til baka