Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
23. júní 2010 11:50

Gengisdómar hæstaréttar skapa óvissu

Viðskiptaráðuneytið óskaði álits ASÍ á því hvaða endurgjald skuldarar þeirra gengistryggðu lána sem hæstiréttur dæmdi ólögmæt skyldu greiða kröfuhöfum. Nokkur vafi er talinn vera í þessu efni þ.e. hvort þeim beri að greiða „samningsvexti“ skv. skuldabréfunum eða almenna vexti Seðlabankans en samningsvextirnir eru talsvert lægri.

Afstaða ASÍ til þessa lögfræðilega álitaefnis er sú að skuldara beri að greiða samningsvexti. Eftir stendur fyrir stjórnvöld að fjalla um þau álitaefni sem dómar þessir skapa að öðru leyti og varða þá hópa sem skulda annars vegar formlega „lögmæt“ gengistryggð lán sem greidd voru út í íslenskum krónum og hins vegar verðtryggð lán.

Umsögn ASÍ

Umsagnarbeiðni viðskiptaráðuneytisins

Til baka


Fréttalisti


Gengisvísitala

mælir breytingar á verði gjaldmiðils...