22. júní 2010 13:28
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ og Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fengu afhenta Bleiku steinanna, hvatningarverðlaun Femínistafélags Íslands í gær, en þeir eru veittir fólki sem er í lykilaðstöðu til að hafa áhrif á gang jafnréttismála í samfélaginu.
Kristín I. Pálsdóttir, talskona femínistafélagsins segir Vilhjálm og Gylfa ekki síst hafa orðið fyrir valinu vegna aðkomu þeirra að stöðugleikasáttmálanum og uppbyggingu í kjölfar efnahagshrunsins. Við afhendingu steinsins á skrifstofu ASÍ sagði Kristín að Femínistafélagið treysti því að ASÍ beitti sér fyrir því í uppbyggingunni að búin yrðu til græn kvennastörf í ekki minna mæli en hefðbundin karlastörf.
Páll Magnússon, útvarpsstjóri og Egill Helgason, þáttastjórnandi á RÚV fengu einnig afhenta Bleiku steinana.

Ólafur Arason og Kristín I. Pálsdóttir fulltrúar Femínistafélagsins ásamt Halldóri Gönvold aðstoðarframkvæmdastjóra ASÍ og Maríönnu Traustadóttur jafnréttisfulltrúa ASÍ en þau tóku við Bleika steininum í fjarveru Gylfa Arnbjörnssonar forseta.
Til baka