Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
16. júní 2010 15:05

Miðstjórn ASÍ - verjum grunnstoðir velferðarkefisins og kjör lágtekjuhópa

Verjum grunnstoðir velferðarkefisins og kjör lágtekjuhópa

Undirbúningur að gerð fjárlaga fyrir árið 2011 er í fullum gangi.Gatið sem þarf að fylla er stórt og því óhjákvæmilegt að draga verður úr útgjöldum og hagræða í ríkisrekstrinum. Miðstjórn ASÍ telur mikilvægt við þessar aðstæður að haft sé náið samráð við verkalýðshreyfingunaum forgangsröðun í rekstri ríkisins, með það að markmiði að verja grunnstoðir velferðarkerfisins og lágtekjuhópa.

Úr fjármálaráðaneytinu hafa borist þau skilaboð að til standi að frysta elli- og örorkulífeyri þriðja árið í röð.Þeirri leið hafnar miðstjórn Alþýðusamband Íslands alfarið.Elli- og örorkulífeyrisþegar eru margir hverjir meðal þeirra sem höllustum fæti standa í þjóðfélaginu og lífeyrir frá almannatryggingum er veigamikill hluti lífeyrisréttinda launafólks á almennum vinnumarkaði. Það verður aldrei samþykkt að ráðist verði að þeim hópi með þessum hætti, á sama tíma og opinberir starfsmenn búa við ríkistryggð lífeyrisréttindi.

Í forsendum fjárlaga er einnig unnið út frá þeirri hugmynd að frysta laun ríkisstarfsmanna á næsta ári.Innan vébanda ASÍ eru 12 þúsund opinberir starfsmenn, margir í láglaunastörfum.Miðstjórn ASÍ hafnar því að samningsrétturinn sé tekinn af okkar fólki með þessum hætti.Ríkisstjórnin verður að leita raunhæfari leiða til að ná endum saman en níðast á þeim er síst skyldi.Nóg er nú samt.

Til baka


Fréttalisti


Laun

er endurgjald starfsmanns í formi peninga sem atvinnurekanda...