05. mars 2010 15:25
Á síðasta fundi miðstjórnar ASÍ var ákveðið að skipa tvo þriggja manna starfshópa, auk sérfræðinga sambandsins, sem fara munu í saumana á aðkomu bankanna að endurskipulagningu á fjárhag heimila og fyrirtækja.
Annar hópurinn hefur það verkefni að rýna í bæði verklagsreglur og árangur af svokölluðum frjálsri greiðsluaðlögun banka og fjármálastofnana á meðan hinn hópurinn mun einbeita sér að vinnulagi bankanna, bæði þeirra nýju sem og slitastjórnum gömlu bankanna við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækjanna.
Markmið þessarar vinnu er að draga saman upplýsingar um framvindu þessara mála til að geta lagt betur mat á nauðsynlegar aðgerðir til að hraða þessari vinnu.
Til baka