Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
11. febrúar 2010 12:56

Krabbamein starfsstétta - fyrirlestur

Næsta föstudag þ.e. 12. febrúar munu Hólmfríður Gunnarsdóttir, gestaprófessor við HÍ og Laufey Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár halda fyrirlestur sem ber yfirskriftina Ójafnræði í heilsufari – krabbamein starfsstétta.

Í fyrirlestrinum verður sagt frá niðurstöðum norrænnar rannsóknar á krabbameinum hjá ýmsum starfsstéttum. Rannsóknarhópurinn var 15 milljón manns og fylgst með honum áratugum saman, 49 tegundir krabbameina voru skoðaðar hjá 53 starfshópum. Tilfellin voru 2,8 milljónir. Sömu starfsstéttirnar koma að jafnaði verst út og sömuleiðis eru hópar sem yfirleitt koma best út. Þetta er í fyrsta skipti sem Íslendingar taka þátt í rannsókn af þessu tagi. Þrátt fyrir meint félagslegt jafnræði og jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu á Norðurlöndum sýna niðurstöður rannsóknarinnar að þjóðfélagsleg staða og menntun getur skipt sköpum.

Fyrirlesturinn verður fluttur í Háskóla Íslands, Odda, stofu 201 frá kl. 12 til 13. Allir eru velkomnir og  aðgangur ókeypis.

Næstu Hádegisfyrirlestrar Rannsóknastofu í vinnuvernd eru eftirfarandi:

26. febrúar

Atvinnuleysi og horfur á vinnumarkaði

Ungt fólk til athafna - átak í atvinnumálum ungs fólks

Karl Sigurðsson,  forstöðumaður vinnumálsviðs Vinnumálastofnunar

Hrafnhildur Tómasdóttir, verkefnisstjóri átaksins Ungt fólk til athafna  

 

12. mars 

Hvernig líður starfsfólki á vinnustað þegar búið er að skera niður og samstarfsfólki hefur verið sagt upp?

Ásta Snorradóttir, félagsfræðingur hjá Vinnueftirlitinu

 

26. mars

Dauðaslys við vinnu á Norðurlöndum

Kristinn Tómasson, yfirlæknir Vinnueftirlitins

 

16. apríl

Hollusta og tryggð starfsfólks – skiptir félagsleg viðurkenning máli

Tómas Bjarnason, sviðsstjóri starfsmanna- og kjararannsókna hjá Capacent



Til baka


Fréttalisti


Brúttólaun

Með heitinu brúttólaun er átt við heildarlaun...