Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
10. febrúar 2010 15:09

Ályktun miðstjórnar: Við viljum vinna

Atvinnuleysi er böl. Það er því forgangsmál að stuðla með öllum tiltækum ráðum að aukinni atvinnu um leið og við verjum störfin. Alþýðusambandið krefst verklegra framkvæmda til að mæta miklum samdrætti í byggingariðnaði og mannvirkjagerð því þar er atvinnuleysið mest. Slíkar framkvæmdir munu einnig hleypa auknu lífi í fjölmargar greinar atvinnulífsins sem þjónusta byggingariðnað og mannvirkjagerð með beinum og óbeinum hætti.

Ríkisstjórnin verður að greiða götu þeirra stórframkvæmda sem nú eru í undirbúningi auk þess að ráðast í framkvæmdir á eigin vegum. Bent hefur verið á fjölmörg verkefni sem ráðast má í á næstu mánuðum og misserum af hálfu stjórnvalda s.s. viðhaldsverkefni vegna opinberra bygginga um land allt, vegabætur, samgöngumiðstöð, byggingu hjúkrunarheimila og nýjan Landspítala.  Þetta eru verkefni sem hefja má tafarlaust vinnu við.



Til baka


Fréttalisti


Vísitala neysluverðs

Mælir breytingu á verði vörukörfu með fjölmörgum...