Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
10. febrúar 2010 10:00

Kosning hjá VR

Kosningu trúnaðarráðs VR og trúnaðarmanna, um þrjá aðalmenn í stjórn og þrjá til vara í einstaklingskosningu vegna framboðs trúnaðarráðs og trúnaðarmanna VR, sbr. 20. gr. laga VR, lauk kl. 13:00 í dag, þriðjudaginn 9. febrúar 2010. Atkvæðisrétt höfðu allir í trúnaðarráði VR og trúnaðarmenn á vinnustöðum eða 263. Alls kusu 87 eða 33,1%. Niðurstöðurnar eru sem hér segir:

Sem aðalmenn í stjórn:

    % af gr. atkvæðum
Ingibjörg Ósk Birgisdóttir Verkfr.félag Íslands     84,9%
Guðrún Helga Tómasdóttir   Icelandair  76,7%
Hildur Mósesdóttir Iceland Express 76,7%

Sem varamenn í stjórn:

    % af gr. atkvæðum
Hólmfríður Björg Petersen    KFUM&K      67,4%
Birgir Már Guðmundsson Sorpa 57,0%
Benedikt Vilhjálmsson Fálkinn  57,0%

Þessir aðilar eru réttkjörnir sem fulltrúar trúnaðarráðs og trúnaðarmanna í einstaklingskosningu til stjórnar VR og sem varamenn í stjórn. 

Á árlegum Nýársfundi VR, sem haldinn var þann 28. janúar 2010, var gengið frá listaframboði trúnaðarráðs og trúnaðarmanna á vinnustöðum til fjögurra sæta í stjórn félagsins og 82ja sæta í trúnaðarráði fyrir næsta kjörtímabil. Framboð trúnaðarráðs og trúnaðarmanna á vinnustöðum fyrir næsta kjörtímabil liggur því fyrir.

Kjörstjórn auglýsir nú eftir öðrum framboðslistum fjögurra stjórnarmanna og 82 í trúnaðarráð á vef VR og í prentmiðlum. Þá geta þeir einstaklingar sem buðu sig fram í stjórn VR fyrir framboðsfrest kl. 12:00 á hádegi 31. desember 2009 og sem ekki náðu kjöri vegna framboðs trúnaðarráðs og trúnaðarmanna í stjórn óskað eftir allsherjaratkvæðagreiðslu í félaginu um sitt framboð. Sjá nánari upplýsingar og leiðbeiningar.



Til baka


Fréttalisti


Hlutastarf

Starfsmaður telst vera í hlutastarfi ef umsamið starfshlutfall...