Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
09. febrúar 2010 11:49

Fleiri konur í forystusveit íslensks atvinnulífs

8. febrúar 2010

Ályktun Jafnréttisráðs um hlutdeild kvenna í stjórnun íslensks atvinnulífs

Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskiptaráð Íslands og Samtök atvinnulífsins undirrituðu samstarfssamning þann 15.maí 2009. Markmið hans er að hlutfall hvors kyns í forystusveit íslensks atvinnulífs verði sem næst 40% í árslok 2013. Samningsaðilar hafa undirstrikað nauðsyn þess að þetta markmið náist, enda benda reynsla og kannanir til þess að það sé farsælast. Fulltrúar allra stjórnmálaafla sem eiga fulltrúa á Alþingi skrifa undir samninginn og lýsa þannig stuðningi við markmið hans.

Nú fer sá árstími í hönd þar sem gera má bragarbót. Aðalfundir framundan og því kjörið tækifæri til breytinga. Jafnt kynjahlutfall í stjórn íslensks atvinnulífs er mikilvægt skref í átt til jafnréttis og atvinnulífi landsins tilheilla.

Jafnréttisráð skorar því á alla sem undirrituðu samstarfssamninginn að beita áhrifum sínum til að markmið samningsins náist sem fyrst.

Fyrir hönd jafnréttisráðs

Þórhildur Þorleifsdóttir, formaður



Til baka


Fréttalisti


Jafnrétti til launa

Atvinnurekendum ber samkvæmt lögum skylda til að greiða...