Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
29. janúar 2010 10:33

Lífeyrismál og endurskoðun á skipulagi ASÍ

Á miðstjórnarfundi ASÍ á miðvikudag var m.a. fjallað um tvö stór verkefni sem verða fyrirferðamikil í innra starfi Alþýðusambandsins á næstu vikum.  Þetta er annars vegar umræða um lífeyrismál og hins vegar umræða um endurskoðun á skipulagi ASÍ.

Til þess að bregðast við breytingum í umhverfi lífeyrissjóðanna var á Ársfundi Alþýðusambandsins í október sl. samþykkt ályktun um heildarendurskoðun á stefnu ASÍ í málefnum lífeyrissjóðanna. Til þess að hefja þessa vinnu hefur ASÍ boðað til tveggja daga stefnumótunarfundar á Selfossi dagana 18.-19. febrúar nk. með fulltrúum frá öllum 53 aðildarfélögum sínum. Tilgangur fundarins er að efna til opinna skoðanaskipta um málefni lífeyrissjóðanna á sem breiðustum grunni og hefja stefnumótunarvinnu með virkri þátttöku allra fundarmanna.

Miðstjórn fjallaði einnig um framkvæmd ákvörðunar ársfundar 2008 um sérstaka fundaröð með öllum stjórnum, varastjórnum og trúnaðarráðum aðildarfélaga ASÍ þar sem efnt verður til umræðu um skipulag ASÍ.  Fundaröðin hefst í Reykjavík 10. febrúar og líkur á Selfossi þann 23. mars. Markmið fundanna verður að fá fram með skipulögðum hætti viðhorf og væntingar í hreyfingunni til uppbyggingar og skipulags verkalýðshreyfingarinnar.  Síðan verður unnið með þær hugmyndir sem koma fram á þessum fundum í skipulags- og starfsháttanefnd sem leggur þær í framhaldinu fyrir sameiginlegan fund aðildarfélaganna.  Á grundvelli niðurstöðu fundanna vinnur skipulags- og starfsháttanefnd svo tillögur að skipulagsbreytingum ef þörf er talin á.  Miðstjórn mun svo fjalla um breytingartillögurnar og í framhaldi af því fer svo forysta sambandsins í kynningarferð með þær tillögur sem miðstjórn verður ásátt um að leggja fyrir ársfund ASÍ 2010.

Fundirnir verða haldnir sem hér segir:

10. febrúar – Reykjavík A – Ýmissalur Skógarhlíð

23. febrúar – Reykjavík C - Ýmissalur Skógarhlíð

24. febrúar – Reykjavík B – Stórhöfði 27

3. mars – Norðurland B – Fosshótel Húsavík

4. mars – Norðurland A – Miðgarður, Varmahlíð

9. mars – Vesturland – Borgarnes

11. mars – Austfirðir – Reyðarfjörður

16. mars – Suðurnes – Krossmóar, Njarðvík

18. mars – Vestfirðir – Ísafjörður

23. mars – Suðurland – Hótel Selfoss



Til baka


Fréttalisti


Fyrirtækjasamningur

er kjarasamningur sem gerður er á milli tiltekins fyrirtækis...