27. janúar 2010 16:45
Á miðstjórnarfundi ASÍ í dag var m.a. fjallað um atvinnumál og spunnust miklar umræður um aðgerðarleysi stjórnvalda í baráttunni gegn atvinnuleysi sem nú fer vaxandi og einnig varðandi greiðsluvanda heimilanna en þar virðast stjórnvöld spila sig stikkfrí og láta fjármálastofnanir um að útfæra úrræðin. Það þykir miðstjórnarmönnum skjóta skökku við því ljóst sé að bankar verði seint félagsmálastofnanir heldur muni þeir hér eftir sem hingað til fyrst og síðast ganga út frá eigin hagsmunum en ekki skuldarans. Ríkisstjórnin verður að taka frumkvæði og axla ábyrgð til að aðstoða þau 17% þjóðarinnar sem að telur sig þurfa á sérstökum úrræðum að halda. Þau úrræði sem þegar hefur verið boðið upp á hrökkva skammt.
Þá kom fram á miðstjórnarfundinum megn óánægja með áhugaleysi bæði stjórnar og stjórnarandstöðu á framgangi Stöðugleikasáttmálans. Sáttmála sem margir litu á sem tímamóta samkomulags síðasta sumar sem átti að leggja grunn að nýrri sókn í efnahags- og atvinnumálum. Nú vill ríkisstjórnin sem minnst af króanum vita. Þetta er óásættanleg staða þegar atvinnuleysi fer vaxandi og sífellt fleiri heimili stefna í þrot. Aðgerða stjórnvalda er krafist.
Til baka