Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
26. janúar 2010 12:08

Verðbólgan lækkar - er nú 6,6%

Verðlag lækkaði um 0,31% milli desember og janúarmánaðar að því er fram kemur í nýrri mælingu Hagstofu Íslands á vísitölu neysluverðs. Verðbólga á ársgrundvelli er nú 6,6%. Vetrarútsölur og lækkun á húsnæðisverði hafa mest áhrif til lækkunar á vísitölunni nú en á móti vega þyngst hækkanir á virðisaukaskatti og öðrum opinberum álögum sem tóku gildi um áramótin. Hagdeild ASÍ gerir ráð fyrir að áfram muni draga úr verðbólgu á komandi mánuðum.

Mest áhrif til lækkunar á vísitölunni nú hefur lækkun á fötum og skóm sem lækka í verði um 10,1% frá því í desember og hefur 0,63% áhrif til lækkunar á verðlag. Sömuleiðis lækkar verð á húsgögnum, heimilistækjum o.fl. um 3,8% og hefur 0,31% áhrif til lækkunar á vísitölunni.

Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkar um 2,9% frá fyrra mánuði sem hefur 0,37% áhrif til lækkunar á vísitölunni, sú lækkun er að mestu til komin vegna lækkunar á markaðsverði húsnæðis. Verð á flugfargjöldum til útlanda lækkar einnig um ríflega fimmtung frá því í desember sem skilar sér í 0,21% lækkun á vísitölunni.

Á móti þessum lækkunum vegur þyngst hækkun á bensíni og díselolíu um 5,7% (0,28% vísitöluáhrif) og hækkun á áfengi og tóbaki um 6,3% (0,22% vísitöluáhrif). Þá hækkar verð á rafmagi og hita um 4,3% (0,11% vísitöluáhrif) milli mánaða. Hækkanir á þessum liðum eru að mestu til komnar vegna hækkana á opinberum álögum.

Verð á mat og drykkjarvörum hækkar um 1% (0,14% vísitöluáhrif) frá fyrra mánuði en þess má geta að þessar vörur eru í neðra virðisaukaskattsþrepinu (7% vsk.) sem tók engum breytingum nú um áramót.

Áhrif af hækkun á opinberum álögum á neysluvörur sem tóku gildi um áramót hafa í heildina 0,74% áhrif til hækkunar á verðlagi nú í janúar en þá hækkaði almennur virðisaukaskattur um eitt prósentustig auk þess sem álögur á áfengi og tóbak, bensín og olíu og rafmagn og heitt vatn voru auknar. Sé vísitala neysluverðs skoðuð án breytinga á sköttum og gjöldum mælist því ríflega 1% lækkun á verðlagi milli mánaða.



Til baka