Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
25. janúar 2010 10:30

Horft til framtíðar fyrir atvinnulíf og samfélag

Á ráðstefnunni Sóknaráætlun fyrir Ísland: Horft til framtíðar fyrir atvinnulíf og samfélag þann 28. janúar munu grasrótarhópar, hagsmunaaðilar og samtök fjalla um sóknarfæri og áherslur sem aukið geta lífsgæði og samkeppnishæfni Íslands á komandi árum. Ráðstefnan er á vegum stýrihóps 20/20 Sóknaráætlunar og forsætisráðuneytisins. Vinna við sóknaráætlunina gengur samkvæmt áætlun og í upphafi árs er lögð áhersla á að fá yfirsýn yfir þá stefnumótun sem unnið hefur verið að víðs vegar í samfélaginu frá hruni og hefja umræðu um lykilspurningar og næstu skref.

Sóknaráætlun fyrir Ísland: Horft til framtíðar fyrir atvinnulíf og samfélag verður haldin á Radisson SAS Saga hótel 28. janúar kl. 13:00 - 17:00. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á nmi@nmi.is.

Dagskrá:

Ávarp forsætisráðherra – Jóhanna Sigurðardóttir

Niðurstöður Þjóðfundar – Guðjón Már Guðjónsson frá Hugmyndaráðuneytinu

Samtök atvinnulífsins – Vilhjálmur Egilsson

Alþýðusamband Íslands – Gylfi Arnbjörnsson

  • Opnar umræður: Hvernig endurnýjum við traust í samfélaginu?

Í opnum umræðum mun fjöldi álitsgjafa úr ýmsum áttum gefa viðbrögð við erindum frummælenda.

Samtök ferðaþjónustunnar – Erna Hauksdóttir

Samtök iðnaðarins – Jón Steindór Valdimarsson

Bændasamtök Íslands – Haraldur Benediktsson

Landssamband íslenskra útvegsmanna – Sveinn Hjörtur Hjartarson

Opnar umræður: Hvernig tökumst við á við kreppuna og byggjum upp öflugt atvinnulíf í sátt við samfélag og umhverfi?

Vísinda og tækniráð – Guðrún Nordal Vísindanefnd og Þorsteinn Ingi Sigfússon Tækninefnd

Niðurstöður Sprotaþings – Davíð Lúðvíksson frá Samtökum iðnaðarins

Upplýsingatækni – Þórólfur Árnason

Viðskiptaráð – Finnur Oddsson

Opnar umræður: Hver eru brýnustu verkefnin framundan?

Á meðal þátttakenda í opnum umræðum eru: Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, Halla Helgadóttir Hönnunarmiðstöð Íslands, Guðmundur Gunnarsson Rafeindasambandi Íslands, Inga Hlín Pálsdóttir Útflutningsráði, Sif Vígþórsdóttir Norðlingaskóla, Páll Ásgeir Davíðsson Eþikos, Ólafur Páll Jónsson heimspekingur, Hjálmar Gíslason frumkvöðull, María Ellingsen leikkona.

 

Fundarstjórn: Dagur B. Eggertsson formaður stýrihóps 20/20 Sóknaráætlunar

Til baka


Fréttalisti


Dagvinna

Vinna á dagvinnutímabili, eins og það tímabil...