15. nóvember 2011
Reykjavík 14.11 2011
Efni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð einkamála, nr. 91/1991 (gjafsókn).
Alþýðusamband Íslands styður samþykkt þessa máls m.a. á þeim forsendum sem fram koma í greinargerð um nauðsyn gegnsæis og skýrleika. ASÍ vekur jafnframt athygli á því, að skv. meginreglu skattalaga eru allar tekjur, gjafir, arfur og annað það sem veruleg áhrif hefur á framfærslu manns og eignir, framtalsskylt óháð skattskyldu. Eftirgjöf skulda fellur skýlaust í þann hóp. Það væri því eðlilegt að ekki væri um tímabundið bráðabirgðaákvæði í skattalögum að ræða heldur varanlega breytingu.
Virðingarfyllst
Magnús M. Norðdahl hrl.
Lögfræðingur ASÍ
Til baka