10. janúar 2006
Alþýðusamband Íslands fagnar framkomu þessa frumvarps og styður eindregið samþykkt þess. Frumvarpið bætir stöðu foreldra og langveikra barna og kemur til og viðbótar og fyllingar þeim réttindum sem foreldrar á almennum vinnumarkaði njóta í sjúkrasjóðum aðildarfélaga ASÍ. Gert er ráð fyrir samspili þessara úrræða í loka málslið 9.gr. frumvarpsins.
Gerðar eru athugasemdir við gildistöku ákvæði 19.gr. Þar er gert ráð fyrir að lögin muni einungis eiga við um börn sem greinast með alvarlega og langvinna sjúkdóma eða alvarlega fötlun eftir 1.1 2006. Vegna þeirra barna sem greinast á árinu 2006 skapast 1 mánaðarréttur, vegna þeirra sem greinast á árinu 2007 skapast 2 mánaðaréttur og loks skapast fullur 3 mánaðaréttur vegna þeirra sem greinast eftir 1.1 2008 sbr. 2-3.mgr. 19.gr.
Það er mat ASÍ að gildistaka með þessum hætti skapi óásættanlega mismunun. ASÍ leggur til að réttur þessi taki til allra barna yngri en 18 ára sbr. a. lið 3.gr., óháð greiningartíma. Þetta er sérstaklega mikilvægt vegna barna sem greinast með hrörnunarsjúkdóma. Jafnframt leggur ASÍ til að fallið verði frá því að hlutfalla réttinn inn og að hann verði látinn koma til fullra framkvæmd þegar við gildistöku en kostnaður vegna fullrar framkvæmdar á árinu 2008 er áætlaður 130 milljónir skv. mati fjármálaráðuneytisins.
F.h. Alþýðusambands Íslands,
Magnús M. Norðdahl hrl.,
lögfræðingur ASÍ
Til baka