18. maí 2010
Reykjavík 18.05.2010
Tilvísun: 201005-0011
Efni: Umsögn um tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2010-2013, 521. mál.
Alþýðusamband Íslands hefur fengið til umsagnar tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2010-2013, 521. mál.
Alþýðusamband Íslands tekur undir þau meginmarkmið byggðaáætlunarinnar að bæta skilyrði til búsetu, nýsköpunar og sjálfbærrar þróunar í öllum landshlutum, efla menntun, menningu, samfélög og samkeppnishæfni byggða og bæja landsins með margvíslegum aðgerðum.
Alþýðusamband Íslands mælir með því að Alþingi samþykki tillöguna.
F.h. Alþýðusambands Íslands
_________________________________
Ólafur Darri Andrason
Hagfræðingur ASÍ
Til baka