05. maí 2010
Reykjavík, 5. maí 2010
Mál: 201004-0022
Efni: Umsögn um frumvarp til laga um breytingar á hjúskaparlögum og fleiri lögum og um brottfall laga um staðfesta samvist (ein hjúskaparlög), 485. mál.
Alþýðusamband Íslands fagnar frumvarpi þessu sem felur í sér að ein hjúskaparlög munu gilda fyrir alla og afmáður er þannig sá munur sem felst í mismunandi löggjöf annars vegar vegna hjúskapar karls og konu og hins vegar vegna staðfestrar samvistar tveggja einstaklinga af sama kyni. Frumvarpið og sú stefna sem það endurspeglar er í samræmi við þau grundvallarsjónarmið um jafnrétti og bann við mismunun sem ASÍ styður.
Virðingarfyllst,
Dalla Ólafsdóttir,
Lögfræðingur hjá ASÍ
Til baka