Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
19. nóvember 2009

Frumvarp til laga um breytingar á lögum um tekjuskatt

Efni: Umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögum um tekjuskatt, 81. mál.

Alþýðusambandi Íslands hefur borist til umsagnar frumvarp til laga um breytingar á lögum um tekjuskatt, 81. mál.

Frumvarp þetta er lagt fram samhliða frumvarpi til laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, 82. mál.

Markmið beggja frumvarpa er að efla rannsóknir og þróunarstarf nýsköpunarfyrirtækja. Annars vegar er ætlunin að veita slíkum fyrirtækjum skattfrádrátt vegna kostnaðar sem til fellur vegna nýsköpunarverkefna og hins vegar að veita frádrátt frá skattskyldum tekjum vegna fjárfestinga einstaklinga desktopdefault.aspx/tabid-21/299_read-1447/og lögaðila í fyrirtækjunum.

Þingmál svipaðs eðlis kom til umsagnar ASÍ í mars á síðasta ári og aftur í mars á þessu ári. Í þeim umsögnum var tekið jákvætt í tillögur um skattaívilnanir vegna rannsókna og þróunarstarfs. ASÍ lítur svo á að efling rannsókna og þróunarstarfs sé ein af forsendum þess að hér á landi megi byggja upp öflugt atvinnulíf til framtíðar.

Ályktun ársfundar ASÍ 2009 um öflugt atvinnulíf á sjálfbærum grunni má nálgast á vef sambandsins: Portaldata/1/Resources/_rsfundur/_lyktun_um_atvinnum_l-lok.pdf

Alþýðusamband Íslands mælir með því að það frumvarp sem hér er til umsagnar verði samþykkt.

Virðingarfyllst,
Stefán Úlfarsson
Hagdeild ASÍ



Til baka


Atvinnuleyfi

eru leyfi sem gefin eru út til atvinnurekanda...