29. október 2009
Reykjavík 28.10 2009
Mál 200910-0029
Efni: Umsögn um frumvarp til laga um breyting á lögum um nauðungarsölu, 90. mál.
Alþýðusamband Íslands (ASÍ ) styður mjög eindregið framgang þessa máls. ASÍ vekur athygli á því ekki eru enn til staðar fullnægjandi réttarúrræði fyrir þann hóp skuldara sem á í verulegum greiðslu- og afkomu vandræðum. Yfir stendur endurskoðun á 10. kafla gjaldþrotalaga (greiðsluaðlögun) og lögum um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðlána en þeirri vinnu mun vonandi ljúka í nóvember og þá tekur við meðferð málsins á Alþingi. Frestun uppboða til loka janúar mun því að líkindum ekki duga.
Virðingarfyllst,
Magnús M. Norðdahl,
lögfræðingur ASÍ
Til baka