Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
02. mars 2009

Frumvarp til laga um afnám laga nr. 141/2003, um eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara, með síðari breytingum, og breyting á lögum nr. 1/1997, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum

Reykjavík, 2. mars 2009

Tilvísun: 200902-0038

 

Efni: Umsögn um frumvarp til laga um afnám laga nr. 141/2003, um eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara, með síðari breytingum, og breyting á lögum nr. 1/1997, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum, mál nr. 313.

Með frumvarpinu er verið að afnema lög nr. 141/2003, um eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara. Samkvæmt frumvarpinu munu almennar reglur um lífeyriskjör opinberra starfsmanna gilda um alþingismenn, ráðherra, hæstaréttardómara og forseta Íslands.

Alþýðusambandi Íslands mótmælti á sínum tíma setningu laga nr. 141/2003 og taldi þau með öllu óeðlileg. ASÍ fagnar því framkomnu frumvarpi og mælir með því að það verði samþykkt.

Til baka


Gengisvísitala

mælir breytingar á verði gjaldmiðils...