Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
17. september 2009 11:43

Stjórnarmenn í lífeyrissjóðum á námskeiði í HR

Hópur stjórnarmanna í lífeyrissjóðum og aðrir fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar sem láta sig lífeyrismál varða hafa undanfarna daga setið námskeið sem nefnist ábyrgð og árangur stjórnarmanna í lífeyrissjóðum. Alþýðusambandið stendur fyrir námskeiðinu í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. Námskeiðinu er ætlað að treysta faglegan grunn stjórnarmanna lífeyrissjóðanna og er á því farið yfir margvísleg viðfangsefni sem tengjast málefnum sjóðanna s.s. lagalega umgjörð, rekstarþætti, fjárhagsleg og siðferðileg viðfangsefni.  Námskeiðið hefur gengið afar vel og þátttakendur eru mjög ánægðir með efnistök, kennslu og aðbúnað.

Sjá nánari dagskrá námskeiðsins hér.



Til baka


Fréttalisti


Vísitala neysluverðs

Mælir breytingu á verði vörukörfu með fjölmörgum...