Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
11. júní 2009 19:29

ASÍ kynnir siðareglur fyrir stjórnarmenn í lífeyrissjóðum

Í dag stóð ASÍ fyrir ráðstefnu um hlutverk og ábyrgð stjórnarmanna í lífeyrissjóðum.  Þar kynntu Kristján Gunnarsson formaður Starfsgreinasambandsins og Guðmundur Gunnarsson formaður Rafiðnaðarsambandsins m.a. hugmyndir ASÍ um ábyrgar fjárfestingar lífeyrissjóðanna og innri starfsemi þeirra.  Hugmyndirnar sem fjallað hefur verið um í miðstjórn ASÍ má sjá hér fyrir neðan.

Guðmundur Gunnarsson í ræðustól á ráðstefnunni í Þjóðmenningarhúsinu.

 

Samfélagslega ábyrgar fjárfestingar lífeyrissjóðanna

Miðstjórn ASÍ beinir því til stjórnarmanna í lífeyrissjóðum að fram fari opin og lýðræðisleg umræða um samfélagslega ábyrgð í fjárfestingum sjóðanna. Slík umræða er mikilvægur hluti af því endurmati sem nú fer fram í samfélaginu. Miðstjórn leggur til að unnið verði út frá neðangreindum hugmyndum lífeyrisnefndar ASÍ að reglum um samfélagslega ábyrgar fjárfestingar lífeyrissjóðanna en leggur jafnframt ríka áherslu á mikilvægi árframhaldandi upplýstrar umræðu um innihald, tilgang og gildi slíkra reglna. Lagt er til að stofnuð verði sérstök Siðanefnd lífeyrissjóðanna á vettvangi Landssambands lífeyrissjóða sem fái það hlutverka að móta reglurnar áfram og fjalla um álitamál sem upp kunna að koma. Miðstjórn beinir því jafnframt til íslenskra stjórnvalda að þau beiti sér fyrir kynningu og framgangi Vegvísis OECD fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki (OECD Guidelines for Multinational Enterprises) sem eru víðtækar fyrirmyndarreglur um ábyrgan fyrirtækjarekstur fyrir öll fyrirtæki.

Hugmyndir Lífeyrisnefndar ASÍ að reglum um samfélagslega ábyrgar fjárfestingar lífeyrissjóðanna:

·Sjóðurinn tekur ekki þátt í fjárfestingum sem orka tvímælis út frá almennum siðferðisreglum.

·Sjóðurinn leggur ítarlegt mat á fjárfestingarkosti sína og kappkostar að fjárfesta í fyrirtækjum sem eru vel rekin og hafa jafnframt siðræn gildi að leiðarljósi. Í því felst m.a. að viðhafa góða stjórnunarhætti, sýna samfélagslega ábyrgð og ábyrgð í umhverfismálum.

·Sjóðurinn leggur áherslu á að þau fyrirtæki sem fjárfest er í starfi samkvæmt lögum og reglum, virði alþjóðlega sáttmála um mannréttindi, réttindi launafólks, barnavinnu og umhverfisvernd.

·Sjóðurinn leggur áherslu á að fyrirtæki sem fjárfest er í starfi innan ramma alþjóðlegra leiðbeinandi reglna, s.s reglna Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar og vegvísis OECD fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki um ábyrgan fyrirtækjarekstur.

·Sjóðurinn leggur heildstætt mat á stjórnun og starfsemi fyrirtækis út frá þáttum á borð við: framleiðsluvörur þess, framleiðsluferli, sambandi við viðskiptavini, fyrirtækjamenningu, eignarhald og hagsmuni eigenda. Meðal annars metur sjóðurinn hvort fyrirtæki komi beint eða óbeint að framleiðslu á vopnum sem notuð eru á þann hátt að það brýtur gegn grundvallar mannréttindum.

·Sjóðurinn byggir mat sitt á opinberum upplýsingum og upplýsingum sem fyrirtækið sjálft veitir. Mat er lagt á afstöðu stjórnar og ábyrgð fyrirtækis og stjórnun með hliðsjón af ofangreindum þáttum.

·Sjóðurinn fylgir eftir öllum fjárfestingum sínum og skal ekki eiga hlut í fyrirtækjum sem uppfylla ekki reglur sjóðsins um samfélagslega ábyrgar fjárfestingar.

·Sjóðurinn tekur tillit til ákvarðana Siðanefndar lífeyrissjóðanna og fjárfestir ekki í fyrirtækjum sem nefndin leggst gegn að fjárfest sé í.

·Sjóðurinn skal í ársskýrslu sinni gera grein fyrir fjárfestingum sínum með sérstakri hliðsjón af stefnu í samfélagslega ábyrgum fjárfestingum.

Reglur um innri starfsemi lífeyrissjóðanna

 

Í umfjöllum um innri starfsemi lífeyrissjóðanna hefur verið rætt um hversu ýtarlegar þær reglur sem ASÍ ætti að leggja til að yrðu settar, þar sem þau tilvik sem upp gætu komið eru mjög fjölbreytt og erfitt að setja reglur sem tækju á öllu. Miðstjórn telur mikilvægt að stjórnir lífeyrissjóðanna hafi alltaf góðar upplýsingar um stöðu mála og einstakar ákvarðanir auk. Jafnframt er mikilvægt að reglurnar endurspegli traust á starfsmönnum sjóðanna.Til að taka af allan vafa telur miðstjórn nauðsynlegt að leggja til nokkuð einfaldar og skýrar grunnreglur um nokkur álitamál. Mikilvægt er að þessum reglum verði fylgt eftir af innri endurskoðendum lífeyrissjóðanna þannig að við frágang ársreikninga liggi fyrir greinargerð og úttekt á öllum ferðum.

Tillögur Skipulags og starfsháttarnefndar ASÍ að ákvæðum um innri starfsemi lífeyrissjóðanna:

 

Starfs- og stjórnarmönnum lífeyrissjóðsins er óheimilt að þiggja eða sækjast eftir gjöfum eða fjármunum frá viðskiptavinum eða væntanlegum viðskiptamönnum sem á einn eða annan hátt tengjast starfi þeirra. Undanteknar eru jóla- og afmæliskveðjur, sem eru að fjárhagslegu verðmæti innan marka sem teljast algeng í slíkum tilvikum skv. nánari reglum stjórnar eða um er að ræða persónuleg tengsl sem ekki verða rakin til viðskipta við lífeyrissjóðinn.

Starfs- og stjórnarmönnum er óheimilt að þiggja boðsferðir af viðskiptavinum, innanlands sem utan, hvort sem um er að ræða skemmtiferðir, svo sem veiðiferðir og golfferðir, eða kynnisferðir vegna einstakra fyrirtækja eða viðskiptakosta. Undanteknar eru ferðir sem talið er að hafi upplýsingagildi fyrir lífeyrissjóðinn eða gera hann hæfari til að sinna hlutverki sínu. Í slíkum tilvikum skal metið af yfirmanni eða sjóðstjórn eftir atvikum hvort svo sé, enda greiði lífeyrissjóðurinn sjálfur kostnað við ferðina nema annað sé sérstaklega ákveðið og formleg heimild veitt til. Sjóðstjórn skal reglulega gerð grein fyrir öllum ferðum skv. framansögðu.

Stjórn lífeyrissjóðsins skal setja starfsemi hans og starfsmönnum almennar samskipta og siðareglur.



Til baka


Fréttalisti


Þjóðarframleiðsla

Þjóðarframleiðsla er landsframleiðsla að viðbættum...