21. janúar 2009 17:33
Á tólf mánaða tímabili til loka nóvember sl. minnkaði kapmáttur um 8%. Hann er nú svipaður og fyrir um fjórum árum við upphaf árs 2005.
Ástæðan fyrir minnkandi kaupmætti er fyrst og fremst mikil og vaxandi verðbólga. Þannig mældist 12-mánaða verðbólga í nóvember 17,1% og hún fór yfir 18% í desember.
Kauptaxtar og greidd laun hafa engan vegin náð að fylgja verðbólgunni eftir. Þannig mældist 12-mánaða breyting launavísitölu í nóvember aðeins 7,8% og hún lækkaði reyndar í nóvember frá fyrra mánuði um 0,6%.
Þar sem verðbólga gæti enn átt eftir að aukast er hætt við að kaupmáttur haldi áfram að minnka á næstuni. Þetta er áhyggjuefni þar sem heimilin í landinu hafa safnað upp miklum skuldum með innlendum verðtryggðum lánum og lánum í erlendri mynt. Mörg þeirra eiga á hættu að lenda í greiðsluerfiðleikum.
Til að létta undir með fólki hafa verið kynnt ýmis úrræði, m.a. á sviði atvinnu- og húsnæðismála. Þá hefur ASÍ ályktað um aðgerðir til að endurheimta fjármálastöðugleika og auka trúverðugleika.

Ítarefni:
Myndir og tölur – Verðbólgan – Kjarasamningar – Laun og launaþróun
– Skuldir heimilanna – Úrræði – Ályktun ASÍ – Tengt efni – Eldra efni
Til baka