Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
09. febrúar 2009 11:14

Fundur um ESB og byggðamál á Íslandi

Atvinnumálanefnd ASÍ stendur fyrir fundum um Evrópusambandsaðild út frá sjónarhóli launafólks. Fengnir eru sérfræðingar og fulltrúar hagsmunaaðila til að reifa álitamál, kosti aðildar, galla og eðlileg samningsmarkmið. Næsti fundur verður fimmtudaginn 12. febrúar og fjallar um ESB og byggðamál á Íslandi.

Viðfangsefni: Evrópusambandsaðild og byggðamál

Stund /staður: Fimmtudagur 12.febrúar kl. 13:00-15:00 /Sætúni 1 „Norðurhúsi“ – 3. hæð

Dagskrá, drög:

13:00 Framsögur:

Hermann Sæmundsson
Skrifstofustjóri sveitastjórnarmála í samgöngumálaráðuneytinu
Byggðastefna ESB

Reinhard Reynisson
Framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga
ESB og jaðarsvæði á Íslandi

Róbert Ragnarsson
Bæjarstjóri Vogum
ESB og miðjusvæði á Íslandi

Anna G. Björnsdóttir
Sviðsstjóri þróunar- og alþjóðasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga
Tekur þátt í umræðum að loknum framsögum

14:00 Kaffi og umræður

15:00 Fundi slitið

Prenta dagskrá

Myndir frá fundi

Fundir ASÍ um ESB



Til baka


Félagsaðild

Á vinnumarkaði er með orðinu félagsaðild vísað...